Flokkun · Skráning · Frágangur
Svona virkar þetta.
Ellefu skref frá fyrstu fyrirspurn að fullbúnu skjalasafni. Við sjáum um þau öll.
Undirbúningur
-
Þið hafið samband
Sendið okkur línu. Við tökum við fyrirspurninni og finnum tíma til að skoða safnið.
-
Við metum safnið
Við komum á staðinn og skoðum umfang, stærð og ástand skjalasafnsins.
-
Við gerum verðtilboð
Út frá matinu fáið þið skýrt verðtilboð fyrir verkefnið.
-
Við sækjum skjölin
Þegar verkefnið er samþykkt sjáum við um pökkun og flutning skjalasafnsins.
Vinnsla
-
Við flokkum
Skjölin eru flokkuð og skipulögð með hliðsjón af uppbyggingu safnsins.
-
Við hreinsum
Óþarfa og óhentugt efni er fjarlægt og skjölin undirbúin fyrir langtímavarðveislu.
-
Við skráum
Safnið er skráð þannig að uppbygging þess og innihald sé skýrt og rekjanlegt.
-
Við göngum frá
Skjölin eru sett í sýrufríar skjalaarkir og viðurkenndar skjalaöskjur.
-
Við merkjum
Við límum merkingar á skjalaöskjurnar.
Afhending
-
Við sjáum um samskipti við varðveislustofnun
Við fyllum út afhendingarbeiðnir og sjáum um önnur samskipti.
-
Við komum safninu til viðkomandi skjalasafns
Við sjáum um flutning á safninu til Þjóðskjalasafns eða annarrar varðveislustofnunar.
Fyrsta skrefið er einfalt.
Segið okkur frá safninu ykkar. Við komum á staðinn, metum safnið og gerum verðtilboð.
Hafðu samband