Forsíða

01 — Forsíða

Flokkun · Skráning · Frágangur

Skipulag sem endist.

Við flokkum, skráum og göngum frá pappírsskjalasöfnum.

Ræðum verkefnið

Fyrir fyrirtæki, stofnanir og félög.

Hendur leggja pappírsskjöl ofan á bunka við hlið merktrar skjalaöskju á vinnuborði

Um þjónustuna

Áreiðanleg meðferð skjalasafna, frá upphafi til enda.

Frágangur og skipulag á pappírsskjalasöfnum stofnana og fyrirtækja vill oft sitja á hakanum. Söfnin geta vaxið hratt að umfangi og með tímanum getur orðið erfitt að halda utan um hvað á að varðveita, hvernig á að flokka skjölin og ganga frá safninu til framtíðar.

Þegar kemur að því að koma skikki á safnið eða afhenda það varðveislustofnun standa stjórnendur oft frammi fyrir verkefni sem getur verið mjög tímafrekt og krefst bæði mannafla og rúmgóðrar aðstöðu.

Við hjálpum fyrirtækjum, stofnunum, félögum og fleirum að koma skipulagi á skjalasöfn sín og tryggja að skjölin séu meðhöndluð með þeim hætti sem hentar til langtímavarðveislu.

Allt ferlið, á einum stað.

Þið þurfið ekki að undirbúa safnið.

Við komum á staðinn og sjáum um verkið frá upphafi til enda, frá mati og verðtilboði til afhendingar á fullbúnu safni.

Þjónusta við afhendingarskylda aðila.

Við sérhæfum okkur í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir sem teljast afhendingarskyldir aðilar samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Í lögunum segir að þessir aðilar skuli afhenda opinberu skjalasafni pappírsskjöl sín þegar þau hafa náð 30 ára aldri.

Ekki falla öll fyrirtæki undir afhendingarskyldu. Ef vafi leikur á getur Þjóðskjalasafn Íslands tekið ákvörðun um hana.

Í samræmi við lögin hefur Þjóðskjalasafn Íslands sett reglur nr. 573/2015 um frágang, skráningu og afhendingu pappírsskjala. Við komum safninu í það horf sem reglurnar segja til um áður en það er afhent.

Byrjum á samtali.

Segið okkur frá safninu ykkar. Við finnum tíma til að skoða það og gerum verðtilboð.