ForsíðaSpurningar

04 — Spurningar

Flokkun · Skráning · Frágangur

Algengar spurningar.

Um kostnað, undirbúning, flutning og afhendingu skjalasafna.

Hvað kostar að ganga frá skjalasafni?

Verð fer eftir stærð og umfangi safnsins, ástandi þess og hversu mikla flokkun, hreinsun og skráningu þarf að framkvæma. Við byrjum á því að koma á staðinn og meta safnið. Að því loknu gerum við verðtilboð fyrir verkefnið.

Þurfum við að flokka skjölin áður en þið komið?

Nei. Við getum tekið að okkur verkefnið frá upphafi. Þið þurfið ekki að eyða tíma í að undirbúa safnið áður en við komum.

Sækið þið skjölin?

Já. Við getum séð um söfnun, pökkun og flutning skjala þegar verkefnið hefur verið samþykkt.

Hvað gerist við gömlu möppurnar, plastvasana og bréfaklemmurnar?

Við hreinsum úr safninu efni sem hentar ekki til langtímavarðveislu, svo sem bréfaklemmur, plastvasa, teygjur og annað óæskilegt geymsluefni, og förgum því á ábyrgan hátt.

Hvernig eru skjölin geymd?

Eftir frágang eru skjölin sett í sýrufríar skjalaarkir og viðeigandi skjalaöskjur sem henta til langtímavarðveislu.

Hvert er safninu skilað?

Þegar við á er safnið tilbúið til afhendingar til Þjóðskjalasafns Íslands eða þess skjalasafns sem afhenda ber safnið til.

Takið þið að ykkur að flokka og skrá skjalasöfn sem ekki er ætlunin að skila inn til opinbers skjalasafns?

Já, við getum flokkað, skráð og gengið frá skjalasöfnum og skilað þeim aftur til skjalamyndara.

Getið þið tekið að ykkur stór skjalasöfn?

Já. Umfang verkefnisins er metið áður en verðtilboð er gert og vinnulag skipulagt út frá stærð og eðli safnsins.

Hvað tekur verkefnið langan tíma?

Það fer eftir stærð, ástandi og umfangi safnsins. Við getum gefið betra mat á verktíma eftir að hafa skoðað safnið.

Getið þið tekið að ykkur að ganga frá skjalasöfnum einstaklinga eða einkaaðila?

Já. Þó að við sérhæfum okkur í þjónustu við afhendingarskylda aðila er einfalt mál að þjónusta einstaklinga eða hverja þá sem óska eftir þjónustu okkar.

Finnurðu ekki svarið?

Sendu okkur fyrirspurn og við hjálpum þér að finna út úr því.